Lyfja Egilsstöðum – Sala og þjónusta

Við leitum að starfsmanni í sölu og þjónustu í Lyfju Egilsstöðum.

Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina okkar um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtielgt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun, gott vinnuumhverfi og möguleikar á að þróast í starfi.

Helstu verkefni:

  • Almenn afgreiðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur
  • Reynsla af störufm í apóteki er kostur

Opnunartími er frá kl. 10-18 virka daga og laugardaga kl. 10-14.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og er um framtíðarstarf að ræða.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Sæbjörg Magnúsdóttir, lyfsali í s. 471 1273 og netfangi [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Sæktu um starfið með því að smella hér