Leikskólakennari við leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði
Kæribær er rúmlega 40 nemenda leikskóli sem skiptist á tvær deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Við vinnum eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og tökum virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppeldi og menntun leikskólabarna
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs
- Foreldrasamstarf í samráði við stjórnendur
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem kennari (æskilegt)
- Reynsla af starfi með börnum kostur
- Góð samskiptahæfni og frumkvæði
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta