Leikskólakennari
Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla auglýsir lausa til umsóknar 100% framtíðarstarf leikskólakennara. Staðan er laus nú þegar.
Seyðisfjarðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og listaskóli staðsettur á þremur nálægum starfsstöðvum í miðbæ Seyðisfjarðarkaupstaðar. Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli með um 30 nemendur. Unnið er með uppeldisstefnuna Uppeldi til ábyrgðar í öllum deildum Seyðisfjarðarskóla. Einkunnarorð skólans eru: Í hverju barni býr fjársjóður.
Næsti yfirmaður er skólastjóri Seyðisfjarðarskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Fylgist vel með velferð barnanna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur kennara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi tímabundið.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð