Laus staða yfirverkefnastjóra hjá Austurbrú
Ertu reyndur stjórnandi? Drífandi, hvetjandi og skipulagður? Með reynslu í menntamálum og með skilning á stjórnsýslu?
Um Starfið
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir haldbærri stjórnunarreynslu, hefur góðan skilning á stjórnsýslu og áhuga á menntamálum. Starfið felst í umsjón með og þróun á þeim verkefnum sem tilheyra fræðslumálum samkvæmt samningum Austurbrúar við stjórnvöld, sveitarfélög og hagaðila.
Við leitum að einstaklingi sem hefur leiðtogahæfni, er fljótur að koma auga á tækifæri og möguleika og getur unnið undir álagi. Yfirverkefnastjóri ber ábyrgð á starfsáætlun málaflokksins, tekur þátt í innleiðingu starfsmanna og öflun nýrra verkefna. Ennfremur ber yfirverkefnastjóri ábyrgð á þarfagreiningum og framkvæmd og útfærslu úrræða sem lúta að mennta- og fræðslumálum á sviði framhaldsfræðslu, símenntunar og háskólamála.
Ef þú vilt vinna á faglega krefjandi og skemmtilegum vinnustað, þar sem hvatinn er menntun á Austurlandi, þá er þetta starfið fyrir þig. Sterk krafa er um að viðkomandi hafi hæfni og áhuga á að vinna í hóp og geti leitt teymisvinnu og stýrt verkefnum á árangursríkan og skilvirkan hátt.
Ábyrgðarsvið
- Ábyrgð á málaflokki fræðsluverkefna; símenntun, námsleiðir og háskólamál
- Aðkoma að rekstri, m.a. eftirlit með fjárhag og gæðum verkefna, skipulag og öflun verkefna
- Ábyrgð á framvindu og skilum verkefna sem undir yfirverkefnastjóra heyra
- Tryggja miðlun og viðhald þekkingar innan Austurbrúar
- Þátttaka í stefnumótun, áætlanagerð og þróun Austurbrúar
- Þátttaka í öðrum verkefnum á starfssviði Austurbrúar
Kröfur
- Háskólaprófi á framhaldsstigi sem nýtist í starfi
- Sterk reynsla af stjórnsýslu og verkefnastjórnun
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og mótun liðsheildar
- Þekking og reynsla af rekstri, áætlanagerð
- Færni í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Góður aðbúnaður
- Sveigjanlegt starfsumhverfi
- Stytting vinnuviku
- Jafnlaunavottun
- Heimavinnudagar
Fylgigögn með umsókn
- Ferilskrá
- Kynningarbréf
- Greinargerð um stjórnunar og stjórnsýslureynslu
- Upplýsingar um meðmælendur
Gögnin skal senda til Tinnu Halldórsdóttur yfirverkefnastjóra innri mála [email protected]
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Yfirverkefnastjóri getur haft aðsetur á hverri af starfsstöðvum Austurbrúar en búseta á Austurlandi er skilyrði. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Fræðagarðs. Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst.
Austurbrú er þverfaglegur og krefjandi vinnustaður sem er leiðandi í stoðþjónustu á Austurlandi hvað varðar atvinnulíf, menntun, byggðaþróun og menningu. Starfsstöðvarnar bjóða góða aðstöðu og aðbúnað. Austurbrú hefur hlotið jafnlaunavottun og er EQM vottuð stofnun á sviði fræðslumála.