KPMG leitar að nýliðum á endurskoðunarsviði

Við leitum að metnaðarfullum viðskiptafræðingum sem stunda eða stefna á M.Acc nám og hafa áhuga á að starfa með öflugum hópi sérfræðinga í alþjóðlegu starfsumhverfi.

Afhverju KPMG?

Öflugur stuðningur frá fyrsta degi

Nýtt starfsfólk fær góða nýliðafræðslu og persónulegan mentor sem veitir bæði faglegan og félagslegan stuðning á meðan þú aðlagast starfinu. Við bjóðum M.Acc nemendum upp á sveigjanleika í starfi samhliða námi.

Fjölbreytt verkefni og forskot með tækni

Þú færð að vinna að fjölbreyttum verkefnum á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skatta og annarrar þjónustu fyrir viðskiptavini um allt land. Þá leggjum við mikla áherslu á að fjárfesta í hæfni starfsfólks og viljum samnýta sérþekkingu okkar með nýjustu tækni og gervigreindarlausnum í daglegum verkefnum.

Sterk liðsheild og góð vinnustaðarmenning

Verkefnin eru unnin í teymum og rík áhersla er lögð á þétt samstarf og jákvæða vinnustaðarmenningu. Við vinnum þvert á svið og með sérfræðingum okkar úr alþjóðlegu samstarfi til að tryggja breiða og faglega þjónustu.

Starfsþróunartækifæri

Hjá KPMG færðu tækifæri til að læra af löggiltum endurskoðendum og sérfræðingum, bæði á Íslandi og erlendis, og þróast í starfi í samræmi við áhuga, hæfni og getu Þá er sérstakur stuðningur í boði fyrir þau sem stefna á löggildingu til endurskoðunar.

Á heimasíðu okkar HÉR getur þú betur kynnt þér málið betur og heyrt hvað starfsfólkinu okkar finnst um starfið og vinnustaðinn.

Dæmi um verkefni og ábyrgð:

  • Endurskoðun fyrirtækja og opinberra aðila.
  • Reikningsskil og gerð ársreikninga.
  • Skattskil og tengd verkefni.
  • Aðrar tilfallandi greiningar og sérverkefni.

Hæfniskröfur:

  • Grunnnám í viðskiptafræði eða öðru námi sem nýtist (lokið eða ert að ljúka).
  • M.Acc nám – stundar, lokið eða stefnir á að hefja.
  • Áhugi á reikningsskilum, endurskoðun og rekstri fyrirtækja.
  • Góð tölvufærni og greiningarhæfni.
  • Skipulögð vinnubrögð og þjónustulund.
  • Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.

Um KPMG

KPMG á Íslandi er hluti af alþjóðlegu ráðgjafarneti og starfrækir 12 starfsstöðvar um land allt. Um 240 sérfræðingar starfa hjá félaginu og veita þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skatta, lögfræði og ráðgjafar.

Við bjóðum meðal annars:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif.
  • Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
  • KPMG-fit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
  • Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Aðgangur að sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2026.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).

Nýliðar hefja störf í ágúst 2026

Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum ([email protected])

Secret Link