Kjörbúðin á Fáskrúðsfirði leitar að öflugum starfskrafti

ATVINNA Í BOÐI
Kjörbúðin á Fáskrúðsfirði leitar að öflugum starfskrafti
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára eða eldri.
Vinnutími er 13:00 –18:00 alla virka daga.

Starfið felur í sér afgreiðslu á kassa, vöruáfyllingar og almenn verslunarstörf.

Áhersla er lögð á styrkleika í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð,
skipulagshæfni, reglusemi og árvekni í hvívetna.
Umsóknir sendist á [email protected] – nánari upplýsingar veitir Ríkey í síma 777-1620
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst 2019