Félagsleg heimaþjónusta á Egilsstöðum

Um er að ræða 20%-100% sumarstarf frá 1. Júní 2022 (getur verið fyrr ef hentar). Einnig gæti verið um framtíðarstarf að ræða.

Starfið felst meðal annars í aðstoð við heimiishald og persónulega umhirðu ásamt því að veita félagsskap.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Íslenskukunnátta.
  • Ökuréttindi eru nauðsynleg.
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur.

 

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Félagsþjónustu Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalheiður Árnadóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Secret Link