Egilsstaðaskóli – starf í Frístund
Við Egilsstaðaskóla er laust til umsóknar starf stuðningsfulltrúa í
Frístund 30% starf. Starfið felur í sér gæslu og umsjón með nemendum
í Frístund, sem er lengd viðvera yngstu nemenda Egilsstaðaskóla.
Leitað er að aðila sem:
• Hefur áhuga á að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við þau.
• Hefur til að bera góða samskiptahæfni og er tilbúinn að vinna með öðrum.
• Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við viðkomandi félag.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið [email protected].
Frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Ruth Magnúsdóttir s. 4700-605
og er umsóknarfrestur til og með 2. október 2020.
www.egilsstadaskoli.is