Deildarstjóri búsetuþjónustu og skammtímadvalar

Deildastjóri skipuleggur ásamt forstöðumanni faglegt starf skammtímadvalar barna í Fjarðabyggð. Hann ber ábyrgð á því að börn sem dvelja í skammtímadvöl fái faglega og persónubundna þjónustu með gerð verkreglna og einstaklingsáætlana. Hann vinnur þessar reglur með forráðamönnum barnanna og kynnir þær fyrir starfsmönnum og leiðbeinir þeim í starfi. Hann heldur uppi góðum tengslum við þjónustuþega, aðstandendur, starfsmenn og aðra aðila eins og þörf er á.

Deildarstjóri skipuleggur ásamt forstöðumanni faglegt starf í búsetuþjónustu fullorðinna einstaklinga í Fjarðabyggð. Deildarstjóri vinnur að einstaklingsáætlunum, skipulagi og öðru faglegu starfi fyrir fullorðna íbúa búsetukjarnans.

Deildastjóri er staðgengill forstöðumanns og aðstoðar því við mannaforráð, þar á meðal gerð vaktplana.

Deildastjóri vinnur í dagvinnu og mun hafa skrifstofu á Reyðafirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur starfsemi skammtímadvalar barna í Fjarðabyggð.
  • Hann ber ábyrgð á því að dvöl barna í skammtímadvöl taki mið af þörfum þeirra jafnt
  • líkamlegum, andlegum sem og félagslegum þörfum.
  • Hann sér til þess að öll börn sem dvelja í skammtímadvöl hafi einstaklingsmiðaða þjónustu áætlun þar sem fram koma öll helstu atriði sem lúta að umönnun, samskiptum, virkni úrræðum og áhugamálum.
  • Hann sér til þess að starfsmenn hafi þá þjálfun og þær upplýsingar sem þörf er á til að sinna þeim börnum sem dvelja í skammtímadvöl á sem bestan hátt.
  • Hefur umsjá og ábyrgð á að starfsmenn fylgi viðurkenndu verklagi og þjónustuáætlunum ásamt forstöðumanni.
  • Leiðbeinir starfsmönnum við að veita notendum einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda og reynslu sem nýtist í starfi er æskilegt.
  • Viðkomandi þarf að vera orðin 18 ára.
  • Hreint sakavottorð.
  • Þörf er á staðgóðri þekkingu á uppeldi og umönnun barna og hafa færni til að veita þjónustu á grundvelli leiðbeininga sérfræðinga.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og áhugi á að afla sér meiri þekkingar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Deildastjóri þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt framtakssemi í starfi.
  • Mikilvægt er að umsækjandi tali, skrifi og skilji íslensku
Secret Link