Bruggari óskast – Múli brugghús
Múli brugghús á Egilsstöðum leitar að reyndum og sjálfstæðum bruggara til starfa. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk þar sem viðkomandi stýrir daglegum rekstri brugghússins og tekur virkan þátt í þróun og framleiðslu.
Við bjóðum:
- Tækifæri til að leiða bruggferlið og móta vörumerkið Múla
- Skapandi og krefjandi starfsvettvang
- Góð vinnuaðstaða og sveigjanleiki
- Sanngjörn og samkeppnishæf laun í boði fyrir réttan aðila
Við viljum ráða sem fyrst. Ef þú hefur brennandi áhuga á bruggun og ert tilbúinn í næsta spennandi verkefni – sendu okkur umsókn!
📧 Umsóknir og fyrirspurnir má senda á [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bruggun og dagleg umsjón með framleiðslu
- Gæðastýring og eftirlit með hreinlæti
- Viðhald á búnaði og þrif
- Ráðstöfun og innkaup hráefna
- Þróun nýrra uppskrifta og vörulínu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af bruggun, helst atvinnubruggun
- Þekking á búnaði og tækni brugghúsa
- Skipulagshæfni og ábyrgðartilfinning
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samstarfi
- Metnaður og ástríða fyrir vönduðum bjór