Ásheimar mann- og geðræktarmiðstöð – Fljótsdalshérað

• 50% afleysingastarf í dagvinnu í 1 ár með vinnutíma 12:00-16:00.
Starfið felur í sér umsjón með starfsemi Ásheima sem er geðræktarmiðstöð á Egilsstöðum. Ásheimar er samastaður fólks sem vill rækta sinn innri mann í góðum félagsskap. Starfsemin mótast að miklu leyti af óskum og þörfum þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð í Ásheimum:
• Að vinna gegn félagslegri einangrun og skapa aðstæður fyrir fólk
að byggja sig upp andlega
• Stuðla að valdeflingu fólks
• Innkaup og þrif

Hæfniskröfur:
• Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Íslenskukunnátta
• Bílpróf er æskilegt

Starfið er laust frá 1. janúar 2020.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Upplýsingar um störfin má fá hjá Önnu Sigríði s: 471 1090.
Netfang: [email protected]
Umsóknarfrestur er til 12. desember 2019.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Fljótsdalshéraðs: www.fljotsdalsherad.is

Secret Link