Aðstoðarskólastjóri leikskóladeildar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Er aðstoðarmaður skólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans.
- Vinnur ásamt skólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við skólastjóra.
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er skólastjóri segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun og daglegt starf leikskólans sem yfirmaður felur honum.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af stjórnendastarfi í leikskóla er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta