Snæfellsstofa

Snæfellsstofa er gestastofa og upplýsingamiðstöð fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og nágrenni. Snæfellsstofa var fyrsta vistvænt vottaða bygging landsins samkvæmt breska umhverfisstaðlinum BREEAM en byggingin er einstaklega glæsileg.

Í Snæfellsstofu er sérlega áhugaverð og falleg sýning, Veraldarhjólið, sem fjallar um hringrás og mótun náttúrunnar. Sýningin leggur áherslu á samspil gróðurfars og dýralífs á austursvæði þjóðgarðsins. Við hönnun hennar var lögð áhersla á að börn gætu snert, lyktað og prófað sig á ýmsum sýningarmunum.

Minjagripaverslun er í gestastofunni með áherslu á vörur úr heimabyggð og nágrannasveitum þjóðgarðsins. Kaffi, te og léttar veitingar eru til sölu. Gott aðgengi er fyrir fatlaða.