Íslenska stríðsárasafnið

Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði var opnað árið 1995. Tilgangur þess er að gera fólki kleift að ferðast aftur til daga herset unnar, rifja upp gömul kynni eða stofna til nýrra. Áhersla er lögð á lífið á stríðsárunum og áhrif hersetunnar á íslensku þjóðina.

Gestir Íslenska stríðsárasafnsins hverfa rúm 70 ár aftur í tímann, allt aftur til 5. áratugarins þegar heimsstyrjöldin síðari geisaði. Sýningar safnsins gera þessu tímabili vönduð skil, bæði út frá sjónarhóli hins almenna hermanns í setuliði bandamanna og íbúa Reyðarfjarðar.

Safnið er staðsett við bragga sem voru hluti af stórum spítalakampi. Sjá má líkan af kampnum ásamt aðstöðu óbreyttra hermanna og yfirmanna. Fjöldi upprunalegra muna glæða safnið lífi og veita óvenjulega innsýn í þessa löngu liðnu tíma, þá ógn sem stöðugt vofði yfir en einnig hversdagslegar aðstæður og tískustrauma.