BRAS – Menningarhátíð barna á Austurlandi

BRAS er menningarhátíð þar sem börnum er gefið tækifæri til að skapa og upplifa listir í víðasta samhengi. Hún var haldin í fyrsta skipti í september 2018 en nú stefnir í að hátíðin verði haldin árlega.

Einkunnarorð hátíðarinnar eru Þora! Vera! Gera! enda er leiðarljós hátíðarinnar að hvetja börn á Austurlandi til að þora að vera þau sjálf og framkvæma á eigin forsendum. Markmiðið er að búa til vettvang þar sem öll börn á Austurlandi geta unnið saman á jafningjagrundvelli óháð móðurmáli, tungumálakunnáttu og búsetu. Unnið er þvert á þjóðerni, byggðakjarna og aldur.

Önnur markmið með BRAS

  • Að börn kynnist fjölbreyttum aðferðum listanna við skapandi vinnu.

  • Að opna augu barna og ungmenna á Austurlandi fyrir mikilvægi samveru, samkenndar og samstöðu.

  • Að gefa börnum tækifæri til að kynnast á nýjan hátt og skilja hvert annað út frá nýjum forsendum.

  • Að auka virðingu og umburðarlyndi meðal barna og ungmenna.

  • Að börn meti að verðleikum fjársjóðinn sem felst í aðgengi að ólíkum menningarheimum.

  • Að nota listsköpunina til að byggja brýr á milli þjóðerna, aldurshópa og byggðakjarna.

BRAS til framtíðar

Sem fyrr segir var BRAS haldin í fyrsta skipti árið 2018 en ætlunin er að þróa verkefnið í þrjú til fjögur ár. Mikill tími fer í undirbúning BRAS en hátíðin er samstarfs- og samvinnuverkefni skóla og sveitarfélaga á Austurlandi auk Skólaskrifstofunnar og List fyrir Alla svo það eru margir lausir endar sem þarf að hnýta. Verkefnisstjórn er á vegum Austurbrúar í mjög góðu og nánu samstarfi við sveitarfélög, menningarstofnanir og skólaskrifstofu Austurlands. Gríðarlegur metnaður og samstaða er um að hátíðin sé sem veglegust og fái að þróast, dafna og vaxa og stefnir hátíðin í að verða einn af stærri viðburðum sem haldnir eru í fjórðungnum. Þegar hátíðinni lýkur ár hvert er unnin könnun á því hvernig til tókst og í framhaldinu er heildarsýn um framtíð BRAS þróuð og endurskoðuð.