![](https://austurland.is/wp-content/uploads/2018/10/2_Rhombie_Hengifoss_8-1100x605.jpg)
Landvörður – Austurland
Landvörður – Austurland
Umhverfisstofnun leitar að landverði á Austurland í tímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og starfi til hausts 2020, með möguleika á framlengingu ráðningar. Starfssvæðið nær frá Lóni í suðri og að Álfaborg við Borgarfjörð eystri, með áherslu á Helgustaðanámu og Hólmanes.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér umsjón og eftirlit með starfssvæðum og að gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða sé fylgt. Landvörður á Austurlandi sér um daglegan rekstur á svæðinu f.h. Umhverfisstofnunar en skipulag faglegrar vinnu er unnið í samráði við sérfræðing svæðisins. Landvörður kemur á framfæri upplýsingum og fræðir gesti um náttúru og sögu svæðanna, sinnir viðhaldi innviða og heldur við merktum gönguleiðum. Hann þarf að vera viðbúinn ef slys ber að höndum og er gerð krafa um að sá eða sú sem verður ráðin(n) til starfa sæki skyndihjálparnámskeið eða hafi gild skyndihjálparréttindi. Þá tekur landvörður þátt í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu varðandi rekstur og umhirðu svæðanna, vinnur með sjálfboðaliðum í náttúruvernd og tekur á móti hópum í umhverfisfræðslu.
Hæfnikröfur
– Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa
– Reynsla af landvörslustörfum er kostur
– Gild ökuréttindi er krafa
– Góð færni í samskiptum er mikilvæg
– Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta er kostur
– Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
– Geta til að starfa sjálfstætt er mikilvæg
– Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.02.2020
Nánari upplýsingar veitir
Arna Hjörleifsdóttir – [email protected] – 5912000
Umhverfisstofnun
Svið náttúru, hafs og vatns Teymi náttúruverndar norður
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík