Lausar stöður í Seyðisfjarðarskóla

Yfirlit yfir lausar stöður í Seyðisfjarðarskóla næsta skólaár 2019-2020
Umsóknarfrestur til og með 31. maí 2019

Listadeild
Aðstoðarskólastjóri: fullt starf.
Tónlistakennarar: Hlutastarf, meðal kennslugreina píanókennsla, blásturshljóðfæri og strengir.

Leikskóladeild
Leikskólakennarar á deild 4-5 ára barna.
Leiðbeinandi í leikskóla afleysing vegna undirbúning og viðvera á deildum eftir þörfum.
Matráður í móttökueldhús: fullt starf.

Grunnskóladeild
Grunnskólakennarar í list og verkgreinum, handmennt, heimilisfræði, leiklist, dans og tónmennt. Hlutastörf.
Stuðningsfulltrúi: fullt starf

Félagsmiðstöð
Umsjónarmaður með Félagsmiðstöð 30% staða. Vinnutími tvo seinniparta í viku.

Skólasel
40% staða. Vinnutími frá 13:00-16:00

Almennar kröfur og upplýsingar um öll störf við Seyðisfjarðarskóla
Við leitum að hæfu fólki til starfa við skólann sem hefur áhuga á starfi með börnum og fullorðnum í anda skólastefnu og heilsueflandi skóla.
Um allar auglýstar stöður gildir eftirfarandi:
Hæfniskröfur
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
Metnaður fyrir skapandi skólastarfi og umhverfisvænum vinnubrögðum í anda skólastefnu Seyðisfjarðarskóla og heilsueflandi leik- og grunnskóla.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Sveigjanleiki, lausnamiðun, stundvísi og áreiðanleiki.
Góð íslenskukunnátta.

Karlar og konur eru hvött til að sækja um
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og AFLI eftir atvikum

Umsóknarfrestur til 31. maí 2019

Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá skv. lögum.
Gögn um menntun og/eða leyfisbréf og ferilskrá skulu fylgja með umsókn ásamt upplýsingum um meðmælendur.

Upplýsingar um störfin, skólann og annað, veitir skólastjóri í síma 470-2327 eða 771-7217, netfang [email protected]

Secret Link