Starfsmaður á vélaverkstæði Eimskips Mjóeyrarhöfn
Leitað er eftir jákvæðum og drífandi starfsmanni í framtíðarstarf á vélaverkstæði Eimskips á Mjóeyrarhöfn.
Vinnutími er frá kl. 08:00 – 16:00 virka daga.
Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.
Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og viðgerðir á bílum, vinnuvélum og tækjum
- Bilanagreiningar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bifvélavirkjamenntun, vélvirkjamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af viðgerðum á tækjum
- Góð íslenskukunnátta
- Frábær þjónustulund, jákvætt hugarfar og samskiptafærni
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur