sumarfrístund fyrir börn með sértækan stuðning í Fjarðabyggð.
Langar þér að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?
Fjarðabyggð óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa með börnum með sértækan stuðning í sumarfrístund í Fjarðabyggð. Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. – 4. bekk sumarið 2026. Stuðningsfulltrúar veita félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við börnin í almennri sumarfrístund. Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 16:15 frá og með þriðjudeginum 8. júní til og með föstudagsins 14. ágúst. Lokanir eru misjafnar eftir kjörnum, hver frístund lokar í fjórar vikur í senn, þá taka við önnur verkefni eins og að hjálpa í öðrum frístundum, þrif, frekari undirbúningur og fleira.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfsmaður sinnir stuðning sem einstaklingur þarf á að halda og þeirra þörfum í frístundarstarfi.
- Leiðbeina einstakling í leik og starfi í sumarfrístund.
- Hjálpa einstakling við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Aðstoða einstakling í kaffitímum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Metnaður og dugnaður.