Starfsfólk óskast í sumarfrístund í Fjarðabyggð
Langar þér að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?
Fjarðabyggð óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur í sumarfrístund í Fjarðabyggð. Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. – 4. bekk sumarið 2026. Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 16:15 frá og með mánudeginum 8. júní til og með föstudagsins 14. ágúst. Lokanir eru misjafnar eftir kjörnum, hver frístund lokar í fjórar vikur í senn, þá taka við önnur verkefni eins og að hjálpa í öðrum frístundum, þrif, frekari undirbúningur og fleira.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt
úti sem inni. - Leiðbeina börnum í leik og starfi í sumarfrístund.
- Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Aðstoða börn í kaffitímum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Metnaður og dugnaður.