Sumarstarf hjá Fjarðabyggðarhöfnum
Fjarðabyggðarhafnir auglýsa laust til umsóknar sumarstarf við hafnir Fjarðabyggðar. Starfið felur í sér öll almenn störf á öllum starfsstöðvum hafnanna, sem staðsettar eru á svæðinu frá Breiðdalsvík til Mjóafjarðar. Starfstími er á tímabilinu frá maí og fram til loka ágúst. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri. Um er að ræða fjölþætt störf sem kalla á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka skipa og samskipti við viðskiptavini Fjarðabyggðarhafna
- Eftirlit, umsjón og skráning á skipakomum, afla, vöruflutningum og öðru því sem um höfnina fer
- Vigtun sjávarafla og skráning í aflaskráningarkerfi Fiskistofu
- Almenn störf, viðhald, hreinsun og snyrting hafnarbakka, hafnarmannvirkja og hafnarsvæða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd kostur
- Vigtarréttindi kostur
- Bílpróf