Innkaupa og afgreiðslustjóri

Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi til að sinna starfi innkaupa- og afgreiðlustjóra á kaffihúsinu okkar. Um er að ræða ábyrgðarstarf þar sem viðkomandi ber ábyrgð á vöruflæði og almennri þjónustu í daglegum rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með innkaupum og birgðastýringu
  • Pöntun á vörum og samskipti við birgja
  • Móttaka og yfirferð á vörum
  • Tryggja gæði, rétt magn og hagkvæmni innkaupa
  • Skipulag og utanumhald lager
  • Virk þátttaka í daglegum rekstri kaffihússins
  • Almenn þjónusta við viðskiptavini og stuðningur við starfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af innkaupum, lagerstjórnun eða sambærilegu starfi æskileg
  • Reynsla af störfum í þjónustu starfi er kostur
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Tölvukunnátta og hæfni til að vinna með pöntunarkerfi
Secret Link