Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið með byrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms, innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár og samvinna er um innra mat og gæðastarf í grunnskólum Fjarðabyggðar.

Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Kjörorð skólans eru „ánægja, ábyrgð, árangur“.

Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð.

Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri

·       Skipulag skólastarfs og samhæfing starfskrafta skólans

·       Fagleg forysta, stefnumótun og þróun skólastarfs

·       Samstarf við stofnanir, heimili og samfélag

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og hæfniskröfur:

•         Leyfisbréf til kennslu

•         Menntun í stjórnun er æskileg

•         Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg

•         Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði

Secret Link