Sumarstörf í Íþróttamiðstöðinni á Djúpavogi

Auglýst er eftir starfsfólki í sumarafleysingar í íþróttamiðstöðina á Djúpavogi frá 1. júní – 31. ágúst 2026. Um er að ræða 80-100% störf í vaktavinnu. Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Djúpavogi.

Starfið snýst um þjónustu við notendur stofnunarinnar og dagleg störf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit og gæsla í sundlaug og klefum.
  • Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
  • Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  • Almenn þrif og annað sem til fellur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum æskileg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og drifkraftur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.
  • 18 ára og eldri
  • Skyndihjálparkunnátta.
  • Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugaverði.
Secret Link