Sumarstarf í íþróttamiðstöð og Sundhöll Seyðisfirði

Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir starfskrafti í sumarafleysingu í íþróttamiðstöð og Sundhöll á tímabilinu 1. maí – 31. ágúst 2026. Um er að ræða 80-100% starf og er vinnutíminn samkomulagsatriði. Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Seyðisfirði.

Starfið snýst um þjónustu við notendur stofnunarinnar og dagleg störf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit og gæsla með gestum íþróttamiðstöðvar og sundhöll.
  • Almenn afgreiðsla.
  • Allar almennar ræstingar.
  • Ýmis önnur störf við stofnunina.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum æskileg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og drifkraftur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni.
  • Hreint sakavottorð.
  • 18 ára og eldri
  • Skyndihjálparkunnátta.
  • Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugaverði.
Secret Link