Starfsmaður í dagþjónustu og í eldhúsi

Um er að ræða 80%-100% framtíðarstarf í Hlymsdölum á Egilsstöðum. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Markmið starfsins er að veita notendum í dagþjonustu félagslegan og persónulegan stuðning auk eldhússtarfa.

Félagsmiðstöðin Hlymsdalir er til húsa ivð Miðvang 6, Egilsstöðum. Í Hlymsdölum er starfrækt félagsstarf fyrir eldri borgara skv. lögum um málefni aldraðra.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður Hlymsdala.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og bakstur fyrir kaffisölu
  • Þrif í eldhúsi
  • Veita dagþjónustunotendum félagslegan og persónulegan stuðning
  • Útkeyrsla á mat í hádegi

Menntunar-og hæfniskröfur

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Þekking á málaflokki aldraða er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillittsemi
  • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi er kostur

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Hlymsdala Múlaþings, sími 470 0798 eða [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 19. desember og hægt er að sækja um í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Starfsmaður í dagþjónustu og í eldhúsi | Hlymsdalir Egilsstöðum (alfred.is).

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýs9ingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is. Tekið er mið af jafnréttisáætlun við ráðningar í störf hjá sveitarfélaginu.

Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.

 

Secret Link