Starf stuðningsfulltrúa
Við Egilsstaðaskóla er laus til umsóknar staða stuðningsfulltrúa frá 1. desember 2023. Um er að ræða 80-100% starf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og ivðkomandi stéttarfélags.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Felur i sér stuðning við nemendur í kennslustundum
- Hefur umsjón með nemendum í hádegi og frímínútum
- Tekur þátt í þverfaglegu starfi árgangateyma
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
- Starfar í frístund
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stuðningsfulltrúanám eða sambærilegt nám æskilegt
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eiga samskipti við þau
- Góð íslenskukunnátta æskileg
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðurnar. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Egilsstaðaskóla þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2023 og sótt er um á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir „störf í boði“.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðlaug Magnúsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0605.
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is