Þjónusturáðgjafi í útibúið okkar á Egilsstöðum

Við leitum að öflugum aðila í starf þjónusturáðgjafa í Arion banka á Egilsstöðum. Við viljum fá til liðs við okkur einstakling sem hefur áhuga á að sinna krefjandi verkefnum og hefur ánægju af því að veita framúrskarandi þjónustu

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf í gegnum síma, tölvupóst og í útibúi
  • Móttaka viðskiptavina
  • Kennsla og kynning á stafrænni þjónustu bankans
  • Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni
  • Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
  • Sveigjanleiki og gott viðmót
  • Frumkvæði, söludrifni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Menntun og/eða starfsreynsa sem nýtist í starfið
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á starfrænum lausnum

Um er að ræða 100% starf sem er tímabundið í eitt ár.

Nánari upplýsingar um starfið veita Heiðrún Bjarkadóttir, þjónustustjóri, netfang: [email protected] og Hreinn Ingi Örnólfsson mannauðsráðgjafi, netfang [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2023 og hægt er ða sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Arion banka Störf í boði | Arion banki | Kynntu þér laus störf í boði

Secret Link