Snjallmælavæðing Austurlandi
RARIK leitar að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi til þess að fylgja eftir snjallmælavæðingu fyrirtækisins á Austurlandi. Viðkomandi þarf að hafa ánægju af samskiptum við fólk og geta unnið sjálfstætt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með orkumælum
- Tenging nýrra viðskiptavina
- Samskipti við viðskiptavini og verktaka
- Gagnavinnsla
- Verkundirbúningur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Góð samskiptahæfni
- Geta til að vinna sjálfstætt
- Góð tölvukunnátta
- Bílpróf
RARIK er fjölskylduvænt leiðandi tæknifyrirtæki í veiturekstri og með ríka samfélagslega ábyrgð. Hlutverk fyrirtækisins er að dreifa raforku auk þess sem fyrirtækið aflar, dreifir og annast sölu á heitu vatni. Hjá fyrirtækinu starfa um 200 starfsmenn vítt og breitt um landið.
Umsóknarfrestur er til og með 20. Febrúar 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Snjallmælavæðing Austurlandi | RARIK ohf. (alfred.is)