Framtíðarstörf á Reyðarfirði

Eimskip leitar að jákvæðu og drífandi fólki í fjölbreytt og spennandi störf í skipaafgreiðslu og í hleðsluskála við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði. Um er að ræða vaktavinnu með möguleika á mikilli aukavinnu. Samkeppnishæf laun eru í boði.

Annars vegar er um að ræða 12 tíma dag- og næturvaktir í hleðsluskála þar sem unnið er í 5 daga og frí í 5 daga og hins vegar á bryggju þar sem unnið er á 8 og 12 tíma vöktum á virkum dögum.

Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu starfsfólks óháð kyni og leitast er eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn lyftaravinna
  • Tölvuskráning
  • Lestun og losun skipa

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Lyftararéttindi J og K er kostur
  • Almenn tölvukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð

Umsækjandi sem er ekki með lyftararéttindi getur átt möguleika á að fara á námskeið á vegum Eimskips.

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Þór Jónasson þjónustustjóri, [email protected] eða í síma 825 2176.

Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Eimskips: Störf hjá Eimskip Reyðarfirði – 50skills

Secret Link