Tónlistarkennari

Tónlistarskólinn á Egilsstöðum óskar eftir tónlistarkennara í 40-80% starf frá og með 1. ágúst 2022.

Ráðning er til eins árs með góðum möguleika á framtíðarstarfi.

Um er að ræða 40-50% starf við kennslu á strengahljóðfæri, en möguleiki er á hærra starfshlutfalli fyrir fjölhæfan kennara.

Starf Tónlistarskólans á Egilsstöðum er blómlegt, í góðum tengslum við Egilsstaðaskóla og meirihluti kennslunnar fer fram á skólatíma grunnskólanemenda.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla á fiðlu á öllum námsstigum að framhaldsprófi
  • Kennsla á önnur strengjahljóðfæri eftir þörfum
  • Önnur kennsla í samræmi við hæfni og áhuga umsækjanda

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
  • Færni í fiðlukennslu á öllum námsstigum að framhaldsprófi
  • Færni í kennslu annarra strengjagljóðfæra æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta eða vilji til þess að læra íslensku

Allar helstu upplýsingar um Tónlistarskólann á Egilsstöðum má finna á heimasíðu skólans: https://www.tonegilsstodum.fljotsdalsherad.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Sóley Þrastardóttir, skólastjóri, í síma 470 0570 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Sakarvottorðs er krafist í ráðninarferlinu.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til 8. maí 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Tónlistarkennari | Tónlistarskólinn á Egilsstöðum | Hlutastarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

Secret Link