Göngutúr í Fellabæ

Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu HSA – Egilsstaðir

Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu HSA – Egilsstaðir
HSA auglýsir eftir aðstoðarmanni á rannsóknarstofu HSA á heilsugæslustöð Egilsstaða. Um er að ræða 20% stöðu og er vinnutíminn tveir virkir morgnar á viku. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
Annast blóðtökur og ákveðin verkefni undir eftirliti lífeindafræðings.

Hæfnikröfur
Reynsla af heilbrigðisþjónustu er æskileg. Sýnir metnað og færni við störf sín.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Vinnutímaskipulag: Dagvinna
Starfshlutfall: 20%
Starfssvið: Heilbrigðisþjónusta
Stéttarfélag: AFL Starfsgreinafélag
Umsóknarfrestur er til: 04.12.2020
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Björt Friðriksdóttir – [email protected] – 470-3028
Emil Sigurjónsson – emils@hsa
.is – 470-3053 & 895-2488
Smelltu hér til að sækja um starfið
https://radningarkerfi.orri.is/?s=23040&oj_Router=1N4IgTg9hAuIFwgPwGcC8AmAzABgCzZAF8g