Verkefnisstjóri á umhverfis- og framkvæmdasviði – Múlaþing

Verkefnisstjóri á umhverfis- og framkvæmdasviði

Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í nýju sveitarfélagi. Óskað er eftir öflugum einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.

Helstu verkefni:
• Utanumhald um byggingar og mannvirki í eigu sveitarfélagsins
• Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með viðhaldi.
• Árlegar úttektir og úttektir við leigjandaskipti.
• Samskipti við forstöðumenn stofnana, úttektaraðila og leigjendur
• Nýframkvæmdir og fjárfestingar í byggingum og gatnagerð
• Seta í byggingarnefndum
• Umsjón með gerð kostnaðar og – framkvæmdaáætlana sem og útboðsgagna
• Samskipti við hönnuði og verktaka, sitja verkfundi og fundi í byggingarnefndum
• Önnur verkefni sem viðkomanda er falið af framkvæmda- og umhverfismálastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á byggingarsviði sem nýtist í starfi, svo sem byggingarfræði, iðnfræði, tæknifræði eða verkfræði er nauðsynleg
• Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála
• Mikil samskipta- og samstarfshæfni
• Góð almenn tölvukunnátta
• Frumkvæði og öguð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta í máli og ritun

Starfsmaður mun vinna náið með yfirmanni eignasjóðs og verður hluti af öflugu teymi starfsfólks á umhverfis- og framkvæmdasviði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hugrún Hjálmarsdóttir, framkvæmda- og umhverfismálastjóri [email protected]

Áhugasamir, óháð kyni og uppruna, eru hvattir til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendum er bent á kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda. Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2020.

Secret Link