Vök leitar eftir starfsfólki

Vök leitar eftir starfsfólki bæði í hluta- og fullt starf

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.

Störfin sem um ræðir eru við afgreiðslu, þrif, laugarvörslu og á veitingastað og þurfa einstaklingar að vera tilbúnir að ganga í flest störf.

Krafa er gerð um ríka þjónustulund, mikla hæfni í mannlegum samskiptum og góða enskukunnáttu (önnur tungumálakunnátta mikill kostur). Leitum aukalega eftir aðila í eldhús.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Heiður Vigfúsdóttir í s. 615 2265 
Umsóknir ásamt ferilskrá má senda á [email protected]