
Eftirlitsmaður til starfa við tækja- og vélaeftirlit
Helstu verkefni eru:
• Tækja- og vinnuvélaeftirlit, sbr. ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum
• Fræðsla á námskeiðum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tæknimenntun, t.d. vélfræði, vélvirkjun eða bifvélavirkjun
• Þekking og reynsla sem nýtist í starfi sem þessu, s.s. vinna við stjórnun og/eða viðgerðir vinnuvéla
• Skipulagshæfni, sjálfstæði, nákvæmni og frumkvæði í starfi
• Sveigjanleiki og mikil hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og þjálfun í framsetningu ritaðs máls
• Kunnátta í ensku og/eða Norðurlandamálum er æskileg
• Tölvufærni
• Reynsla af fræðslu- og kynningarstarfi kostur
Um er að ræða 100 % starf með aðsetur að Kaupvangi 6, 700 Egilsstaðir. Eftirlitssvæðið nær yfir Austurland. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsþjálfun fer fram við upphaf starfs. Laun eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Konur
jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
Vinsamlegast sækið um á vef Vinnueftirlits ríkisins eða á Starfatorgi.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní. nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Guðmundsson s. 550 4600.
Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu og byggir starf sitt á samþættingu eftirlits,
fræðslu og rannsókna. Vinnueftirlitið starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum nr. 46/1980. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu www.vinnueftirlit.is.
Frumkvæði – Forvarnir – Fagmennska