VÍNBÚÐIN NESKAUPSTAÐ

Við leitum að jákvæðum og röskum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Hæfniskröfur
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur

Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Umhirða búðar

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist.
Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar nk. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is
Nánari upplýsingar: Þorlákur Ægir Ágústsson, [email protected], 560 7881 og Thelma Kristín Snorradóttir, [email protected], 560 7700.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera
eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á
sviði samfélagsábyrgðar.

Starfshlutfall er 68,8%.

Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn
sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem
samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.