Vínbúðin Egilsstöðum leitar af sumarstarfsfólki

Við leitum að jákvæðum og röskum einstaklingum sem eru tilbúnir að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Umhirða búðar

Hæfniskröfur
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur

Um er að ræða 100% starf. Starfstímabil er júní, júlí og ágúst.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist.
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars nk. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is.
Nánari upplýsingar: Erna Þórey Guttormsdóttir – [email protected], 471 2151
og Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected], 560 7700.

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum

Secret Link