Vilt þú vinna á líflegum vinnustað?
N1 Egilsstöðum óskar eftir kraftmiklum og þjónustulunduðum starfsmönnum til framtíðarstarfa. Um er að ræða starfsfólk í almenna afgreiðslu, fullt starf eða hlutstarf þar sem unnið er á vöktum.Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Þjónustustöðin okkar er fjörugur vinnustaður og iðar af mannlífi frá morgni til kvölds.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðsla
- Önnur tilfallandi verkefni á stöðinni
Hæfniskröfur:
- Reglusemi og stundvísi áskilin
- samskiptafærni og þjónustulund
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni og ELKO
- Styrkur til heilsueflingar