Viðskiptafræðingur í Neskaupstað

Deloitte í Neskaupstað leitar að öflugum einstaklingi með viðskiptafræðimenntun sem langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Viðkomandi mun starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu meðal annars á sviði endurskoðunar og reikningsskila.

Um teymið
Teymið samanstendur af starfsfólki á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvert annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum.

Í starfi þínu hjá Deloitte gæti hefðbundinn vinnudagur litið svona út:

  • Þú vinnur sem hluti af teymi metnaðarfullra einstaklinga
  • Þú vinnur að fjölbreyttum verkefnum
  • Þú nýtir þér námskeið á vegum Deloitte og samstarfsaðila til að auka færni þína og þekkingu
  • Þú vinnur undir handleiðslu reyndra sérfræðinga
Helstu verkefni og ábyrgð

·       Gerð ársreikninga

·       Gerð skattframtala

·       Almenn fjármálaráðgjöf.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Þú ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. gráðu sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum

·       Þú hefur metnað og nýtur þess að læra

·       Þú hefur gaman af því að takast á við ný og krefjandi verkefni

·       Þú býrð yfir greiningarhæfni og góðri þekkingu á Excel

·       M.Acc gráða er kostur

Fríðindi í starfi

·       Regluleg frammistöðu samtöl

·       Samstarfsfélaga sem kemur þér inn í starfið

·       Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf

·       Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum

·       Aðgang að alþjóðlegu efni Deloitte

Secret Link