Við leitum að liðsmönnum í hótelstörf á Icelandair hótel Héraði

• Næturvörð í hlutastarf
• Þjónusta í veitingasal og gestamóttöku

Umsækjendur þurfa að búa yfir:
• Ríkri þjónustulund og vandaðri framkomu
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum
• Snyrtimennsku og stundvísi
• Jákvæðni og vilja til að takast á við fjölbreytt verkefni

Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst 2020.
Sótt er um rafrænt á heimasíðunni www.icelandairhotels.is
Nánari upplýsingar um starfsvið, hæfniskröfur og kjör veitir:
Auður Anna Ingólfsdóttir, hótelstjóri: [email protected]

Hjá Icelandair hótelum starfar fjölbreyttur hópur fólks með sameiginleg skýr markmið, sem ber virðingu fyrir gestum og samstarfsmönnum. Við ráðningar er leitað að fólki sem er jákvætt, hefur vilja til að læra og ná árangri og hefur gaman af að vinnu í líflegu og alþjóðlegu umhverfi og þjóna gestum okkar. Ef þú hefur áhuga á að starfa á lifandi vinnustað þar sem fagmennska og metnaður er í fyrirrúmi, hvetjum við þig til að leggja inn umsókn.

Secret Link