Verslunarstjóri
Búðin á Borgarfirði hóf rekstur árið 2018 og er í eigu og rekin af íbúum Borgarfjarðar eystra. Ef þú hefur áhuga á að kynnast dásamlegu samfélagi sem er hentugt fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga þá er þetta tækifæri fyrir þig. Á Borgarfirði eystra er grunnskóli og gjaldfrjáls leikskóli. Staðurinn er þekktur sem mikil útivistarparadís bæði sumar og vetur.
Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, vöruúrvali og að halda búðinni fallegri og snyrtilegri. Einnnig þarf að sjá um létt bókhald og skráningu í afgreiðslukerfi.
Aðallega felst starfið i samskiptum við viðskiptavini því búðin okkar er líka hálfgerð félagsmiðstöð.
Hér er um að ræða 70% starf yfir vetrarmánuðina og 100% að sumri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla í búð
- Pantanir
- Létt bókhaldsvinna
- Upplýsingagjöf til ferðamanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Færni í íslensku og ensku
- Áhugi á fólki
- Almenn tölvukunnátta