Verslunarstjóri óskast
Búðin á Borgarfirði hóf rekstur árið 2018 og er í eigu og rekin af íbúum Borgarfjarðar eystra. Ef þú hefur áhuga á að kynnast dásamlegu samfélagi sem er hentugt fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga þá er þetta tækifæri fyrir þig. Á borgarfirði eystra er grunnskóli og gjaldfrjáls leikskóli. Staðurinn er þekktur sem mikil útivistarparadís bæði sumar og vetur.
Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, vöruúrvali og að halda búðinn fallegri og snyrtilegri. Einnig þarf að sjá um létt bókhald og skráningu í afgreiðslukerfi.
Aðallega felst starfið í samskiptum við viðskiptavini því búðin okkar er líka hálfgerð félagsmiðstöð.
Hér er um að ræða 70% starf yfir vetrarmánuðina og 100% að sumri. Æskilegt er að geta hafið störf um miðjan desember.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla í búð
- Pantanir
- Létt bókhaldsvinna
- Upplýsingagjöf til ferðamanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Færni í íslensku og ensku
- Áhugi á fólki
- Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Ökutækjastyrkur
- Afsláttur í búðinni
- Aðstoð við húsnæðisleit
Tækifæri til aukavinnu fyir vetrartímann
Nánari upplýsingar í síma 895 0176 eða [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Verslunarstjóri óskast | Búðin Borgarfirði | Hlutastarf Borgarfjörður (eystri) | Alfreð (alfred.is)