Verslunarstjóri Borgarfirði Eystri
Um fullt starf er að ræða yfir sumartímann en 60% starf yfir vetrarmánuðina. Þorpsverslunin er í eigu Borgfirðinga og velunnara staðarins. Starfið er fjölbreytt og sjálfstætt en margir á staðnum eru tilbúnir til að veita aðstoð og leysa af eftir þörfum. Verslunin er í hjarta Borgarfjarðar og samkomustaður heimamanna og ferðamanna.
Endilega hafið sambandvið Einfríði í síma 860 8856 til að ræða málin.
Umsóknir sendist í netfangið [email protected]