Verkstjóri vélaverkstæðis Mjóeyrarhöfn

Eimskip leitar að metnaðarfullum aðila til að taka við stöðu verkstjóra vélaverkstæðisins Eimskips á Austurlandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg verkstjórn
  • Ábyrgð starfsmannamála
  • Þjálfun starfsfólks
  • Markmiðasetning deildar ásamt eftirfylgni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Fullgild réttindi sem bifvélavirki/vélvirki
  • Reynsla af verkstjórn
  • Reynsla af viðgerðum á vinnuvélum
  • Vinnuvélaréttindi eru æskileg
  • Góðir samstarfshæfileikar
  • Skipulagshæfni og frumkvæði í störfum

Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur F Jónsson, svæðisstjóri Eimskip á Austurlandi, pejo@eimskip.,com

Umsóknarfrestur er til og með 3. September 2023 og  eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Eimskips www.eimskip.is

Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

 

Secret Link