Verkstjóri í frystihúsi – Eskifjörður
Eskja óskar eftir að ráða verkstjóra til að sinna fjölbreyttum og krefjandi störfum
í uppsjávarfrystihúsi félagsins á Eskifirði.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
STARFIÐ
Starfið felur meðal annars í sér daglega stjórnun og skipulagningu á vinnu starfsfólks.
Viðkomandi hefur umsjón með gæðastarfi og að unnið sé samkvæmt verklags- og
öryggisreglum. Hluta árs er unnið á 12 tíma vöktum sem skiptast í dag- og næturvaktir.
MENNTUN OG REYNSLA
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi reynslu af verkstjórn og starfsmannahaldi.
Menntun og/eða reynsla tengd sjávarútvegi er kostur.
AÐRAR HÆFNISKRÖFUR
– Hæfni til að eiga uppbyggileg samskipti við einstaklinga og starfsmannahópa.
– Hæfni til að hvetja fólk til dáða og hámarka frammistöðu þess.
– Mikill skilningur á framleiðsluferli og framleiðslutækni.
– Hæfni til að leiða greiningu og úrlausn vandamála.
– Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
– Hæfni til að nota og læra á ýmis tölvuforrit og kerfi (Innova, MS Office, Navision, Bakvörð o.fl.).
UMSÓKNIR OG NÁNARI UPPLÝSINGAR
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Ársælsson ([email protected]). Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið í gegnum heimasíðu fyrirtækisins: www.east.is
Umsóknarblöð er að finna undir flipanum:
Fyrirtækið->Atvinnuumsókn.
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.