Verkstæðisformaður á vélaverkstæði
Starf verkstæðisformanns á vélaverkstæðinu er laust til umsóknar.
Um er að ræða fullt starf og starfstöðin er á Reyðarfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og lagfæringar á vinnuvélum og snjómokstursbúnaði Vegagerðarinnar
- Viðhald og lagfæringar á vegbúnaði, m.a. veðurstöðvum og myndavélum
- Ýmis vinna í starfsstöð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bifvélavirki/vélvirki
- Meistararéttindi æskileg
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Stjórnunarreynsla er æskileg
- Æskilegt að umsækjandi hafi vinnuvélaréttindi og meirapróf
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta
- Góð öryggisvitund
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóttur vinnustaður
Áhugasamir einstaklingar, án tillit til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 2. janúar 2022.
Nánari upplýsingar veita:
Davíð Þór Eyrbekk Sigfússon, deildarstjóri þjónustudeildar – [email protected] – 522 1945.