
Verkefnisstj stafr.lausna & plöntuflutn.
Verkefnisstjóri stafrænna lausna og plöntuflutninga vinnur að þróun stafrænna lausna tengdra skógrækt, sér um skipulag og framkvæmd plöntuflutninga, tekur þátt í að þróa skógræktarstarf í landinu, auka umfang þess og bæta árangur. Verkefnastjórinn starfar samkvæmt stefnu og gildum Skógræktarinnar og er í góðum tengslum við stjórnendur og aðra starfsmenn.Umsóknarfrestur: 11. febrúar 2022.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun stafrænna lausna og innleiðing þeirra
- Innleiðing Stafræns Íslands varðandi öll samskipti við viðskiptavini, unnið í samstarfi við næsta yfirmann og fjármálastjóra.
- Ráðgjöf í stafrænum viðfangsefnum innan stofnunarinnar.
- Þátttaka í samráðshópum og teymisstarfi stafrænna leiðtoga og annarra sérfræðinga.
- Miðlun á upplýsingum og þekkingu til starfsfólks sviðsins um stafræna þróun og aðferðir.
- Yfirsýn fjármagns í stafræn verkefni
- Þróun á flutningskerfi plantna í samstarfi við fjármálastjóra, aðra sviðstjóra, verkefnisstjóra erfðaefnis og plöntuframleiðendur
- Utanumhald plöntuflutninga.
- Utanumhald dreifingarstöðva.
- Samskipti við plöntuframleiðendur, ráðgjafa og dreifingarstöðvar varðandi flutningana.
- Þátttaka í teymi um gæðaeftirlit plantna.
- Önnur verkefni sem næsti yfirmaður felur starfsmanninum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í tölvunar- eða kerfisfræði er skilyrði. Háskólagráða í skógfræði er kostur.
- Reynsla af áætlanagerð, þekking á stefnumótun og notendamiðaðri hönnun.
- Mikill áhugi á stafrænum lausnum og stafrænum umbreytingum.
- Þekking og/eða reynsla af því að leiða breytingar, þverfaglegt samstarf ólíkra einstakling og vinnustaða.
- Skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að miðla sýn, aðgerðaáætlunum og gildi þeirra.
- Góðir samskiptahæfileikar.
- Þekking og reynsla af skógrækt og starfsemi Skógræktarinnar er kostur.
- Gott vald á töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Fræðagarður hafa gert.
Starfið er 100% starf en hægt að semja um annað starfshlutfall. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun mars 2022. Vinnustaður er á einhverri starfsstöð Skógræktarinnar (Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði, Hvammi, Mógilsá eða Selfossi).
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.02.2022
Nánari upplýsingar veitir
Gunnlaugur Guðjónsson – gulli@skogur.is
Björg Björnsdóttir – bjorg@skogur.is