Verkefnastjóri umhverfismála

Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert 100% framtíðarstarf á umhverfis- og framkvæmdasviði. Óskað er eftir öflugum einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi.

Verkefnastjóri umhverfismála hefur yfirumsjón með umhverfismálum, sorphirðu, almenningssamgöngum, gæludýrahaldi og landbúnaðarmálum í sveitarfélaginu auk þess sem han nvinnur náið með garðyrkjustjóra að umsjón með umhirðu, ásýnd, opnum svæðum, vinnuskóla og lóðum stofnana. Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfskraftur ermeð fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstofum Múlaþings; Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með sorphirðu, móttöku á endurvinnsluefni og urðun á sorpi í sveitarfélaginu
  • Umsjón með málefnum á sviði landbúnaðar þar með talið t.d. girðingamálum, skógrækt, lausagöngu, varnarlínum, fjallskilum og réttum, búfjáreftirliti, veiðimálum, meindýraeyðingu og dýravernd
  • Málefni gæludýra
  • Umsjón með verkefnum sen tengjast náttúru- umhverfis- og loftslagsvernd, skógrækt, friðlýsingu svæða, náttúruminjum og umhverfisfræðslu í sveitarfélaginu
  • Umsjón með merkingu stíga og gönguleiða utan þéttbýlis, náttúruminja og sögustaða
  • Skipulag og rekstur vinnuskóla
  • Umsjón með framkvæmd útboða og leitar tilboða vegna þeirra verkefni er undir hann heyra
  • Gerð áætlana og stefnumótunar, framkvæmd þeirra og úrvinnsla, eftirfylgni og kostnaðareftirlit

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
  • Góð þjónustulund og öguð vinnubrögð
  • Þekking og reynsla af umhverfismálum
  • Þekkng á lagaumhverfi málaflokksins
  • Reynsla af verkefnastjórn og opinberri stjórnsýslu
  • Góð almenn tölvukunnátta og almenn leikni í upplýsingatækni
  • Mjög góð færni í íslensku í máli og riti

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar um störfin veitir framkvæmda- og umhverfismálastjóri Múlaþings, [email protected].

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Verkefnastjóri umhverfismála | Umhverfis-og framkvæmdasvið (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir flipanum „störf í boði“.

 

Secret Link