Verkefnastjóri textílfræða – Hallormsstaðaskóli

Hallormsstaðaskóli leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi í stöðu verkefnastjóra textílfræða með áherslu sjálfbærni og sköpun. Verkefnastjóri ber ábyrgð á faglegri og akademískri stefnumótun á sviði textílfræða, útfærslu í námi og kennslu í samstarfi við skólameistara.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging náms og kennslu á fagsviðinu.
  • Mótun stefnu textílfræða í samræmi við stefnu skólans.
  • Þverfagleg samvinna milli sviða.
  • Samstarf við fagvettvang og alþjóðlegt samstarf.
  • Málefni nemenda og móttöku gestakennara.
  • Gerð rekstra- og fjárhagsáætlana verkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í textílhönnun, hönnun, efnafræði, sjálfbærni.
  • Góð þekking og reynsla af starfsemi á framhalds- og/eða háskólastigi þ.m.t. kennslu og stjórnun.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðað hugarfar.
  • Góð tölvu- og tæknifærni.

Umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn

Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.

Staðfest afrit af prófskírteinum.

Umsókn ásamt gögnum skal skilað eigi síðar en 22. júlí 2020 á netfangið [email protected], merkt: Verkefnastjóri textílfræða.

Ráðið er í starfið frá 10. ágúst 2020 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Fiona Ford, skólameistari [email protected] eða í síma 8622896. Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Skólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Starfsumhverfi – Hallormsstaðaskóli er sjálfseignarstofnun og starfar eftir rekstrarsamningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hallormsstaðaskóli er staðsettur í hjarta Hallormsstaðaskógar og hefur verið starfræktur í 90 ár.

Stefna skólans er að mennta nýja kynslóð fagfólks sem getur unnið þvert á fræði og faggreinar, hefur haldgóða þekkingu og færni á sviði sjálfbærni og sköpunar með áherslu á nýtingarmöguleika auðlinda. Hlutverk skólans er að veita einstaklingum tækifæri, möguleika og aðstöðu til þess að rannsaka, þróa og dýpka þekkingu sína og verða ný kynslóð fagfólks í þverfaglegum heimi.