Verkefnastjóri hringrásarhagkerfis
Hefur þú brennandi áhuga á hringrásarhagkerfinu? Ertu lausnamiðaður og fær í að byggja upp tengslanet? Áttu auðvelt með að koma auga á ný tækifæri og þróa hugmyndir?
Eygló er samstarfsverkefni á grunni hringrásarhagkerfis, orkuskipta og nýsköpunar á Austurlandi, heitið vísar til öflugasta orkugjafans, sólarinnar, og til bjartrar og kraftmikillar framtíðar. Meginmarkmið Eyglóar er að efla nýsköpun og þróun, með áherslu á að bæta nýtni hliðarstrauma og flétta þá inn í nýja verðmætasköpun. Þetta styður við vöxt sprotafyrirtækja og fjölgar tækifærum til þátttöku í alþjóðlegum rannsókna- og þróunarverkefnum í stamstarfi við fyrirtæki á svæðinu. Ætlunin með Eygló er að leiða saman aðila til að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum.
Austurbrú auglýsir eftir sérfræðingi til að sinna verkefnum sem snúa að uppbyggingu og þróun á viði hringrásarhagkerfisins, orkuskipta og nýsköpunar. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir skilningi og þekkingu á hringrásarhagkerfinu og sérþekking á sviði orkuskipta og nýsköpunar er kostur. Starfið felst í þeim verkefnum sem tilheyra Eygló, nýjum málaflokki innan Austurbrúar sem grundvallast á samningi Austurbrúar við Landsvikrjun, umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins og sveitarfélaganna á Austurlandi. Sérfræðingurinn þarf að búa yfir greinandi hugsun, sjálfstæði og vera fljótur að koma auga á tækifæri, lausnir og möguleika. Ennfremur að hafa góða samskiptahæfni og færni í að vinna skipulega að verkefnum og áætlunum.
Ef þú vilt vinna á faglega spnnandi og skemmtilegum vinnustað, þar sem hvatin er efling hringrásarhagkerfisins á Austurlandi, þá er þetta starfið fyrir þig. Viðkomandi starfsmaður þarf að hafa hæfni og áhuga á að vinna í hóp þar sem verkefni Austurbrúar eru teymisdrifin, áhersla er á skilvirka miðlun upplýsinga og skýra vinnuferla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Virk þátttaka í mótun og framkvæmd verkefna málaflokksins
- Skipulag og uppbygging á tækifærum Eyglóar með hringrásarhugsun að leiðarljósi
- Samskipti, samstarf og samvinna við hagaðila og samningsaðila
- Aðkoma að öflun samstarfsaðila, styrkja og fjármagns
- Teymisvinna, þátttaka og tenging við önnur verkefni á starfssviði Austurbrúar á grunni Eyglóar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Brennandi áhugi á sviði hringrásar, orkuskipta og nýsköpunar
- Þekking á nýsköpunar,- frumkvöðla- og styrkjaumhverfi vegna þróunar og rannsóknaverkefna
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og færni í að koma frá sér efni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, reynsla af verkefnastjórn er kostur
- Tækniþekking sem nýtist í starfi er kostur
- Góð færni í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Heimavinnudagar
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi
Umsókn skal fylgja
- Ferilskrá
- Ítarlegt kynningarbréf þar sem fram koma forsendur umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir kröfur starfsins
Gögnin skal senda til Tinnu Halldórsdóttur yfirverkefnastjóra innri mála [email protected]
Frekari upplýsingar veitir Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdstjóri Austurbrúar [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 19.03.2023.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Búseta á Austurlandi er skilyrði og myn starfsstöð taka mið af búsetu viðkomandi. Lau neru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Fræðagarðs. Austurbrú er þverfaglegur og spennandi vinnustaður sem er leiðandi í stoðþjónustu á Austurlandi hvað varðar atvinnulíf, menntun, byggðaþróun og menningu. Austurbrú hefur hlotið jafnlaunavottun og er EQM vottuð stofnun á sviði fræðslumála og var framsúrskarandi fyrirtæki 2022 á lista Creditinfo.